Hejsa fra Aarhus
Klukkan
14.09.2007 16:02:48 / mseefb

Halló allir saman

Jæja vildi bara segja ykkur að ég er að prófa annað kerfi sem sagt http://www.123.is/dk/

 Veit ekki hvort ég haldi því svo áfram en ætla að skrifa inn á það næstu daga:)

Kveðja Magga og co


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 12:19:32 / mseefb

Góðan daginn allan daginn:)

Vá heldur betur kominn tími á nýja færslu:S Mikið búið að vera að gera hjá okkur familiunni síðan síðast og hér kemur færslan:)

Fórum á Sylt og hittum allt fólkið mitt og var þessi ferð algjört æði í alla staði:D Þessi eyja er bara geggjuð og ráðlegg ég öllum að prófa (sleppa Spáni svona einu sinni og kíkja á Sylt:D Afmælið hans pabba var haldið á mánudeginum og tókst það rosalega vel. Allir rosalega ánægðir með kvöldið, frábær matur, geggjuð þjónusta og allir hressir og kátir:D Svo átti hún mamma mín líka afmæli í ferðinni og var þá líka farið út að borða sem tókst einnig mjög vel og voða gaman. Það er bara svo gaman alltaf hjá okkur þegar við hittumst, eða hvað segið þið hin eruð þið ekki sammála:haha: Það var legið á ströndinnni, farið í búðir og auðvitað kíkt á skemmtanalífið en ekki hvað:haha: Þó að langt sé síðan þá vill ég bara segja takk fyrir samveruna allir frá okkur familiunni og elsku mamma og pabbi takk æðislega fyrir okkur, þetta var frábær ferð í alla stað:!::!:

Eftir ferðina var haldið aftur til DK þar sem við þurftum að pakka ofan í tösku eina ferðina enn því Lovísa og Einar fóru til Ísl snemma á sunnudagsmorguninn:^) Það var rosalega skrýtið að hafa ekki Einar og Lovísu hérna og var ég farin að sakna þeirra strax á fyrsta degi:cry: En hún elskulega Brynja frænka mín kom með okkur til DK og var hún hjá okkur Jónu Kristínu til 24.ágúst og var það rosa fínt, rólegt og gott hvort sem þið trúið því eða ekki en alveg satt bara rólegt og ekkert farið á skrall;) Takk fyrir okkur Brynja og þú veist að þú ert alltaf velkomin til okkar:D

Eftir að Brynja fór fannst mér nú ansi tómlegt eitthvað hérna svo við mæðgurnar skelltum okkur á klakann á fös og var það alveg geggjað að koma heim og hitta alla:haha: Sakna ykkar svo mikið:whut: Segi ykkur frá heimförinni í næstu færslu ætla að halda áfram að þrífa á meðan ég er í stuði:lol:

Kveðja Magga og co


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 19:02:25 / mseefb

KVEÐJA

Halló halló allir saman:lol: Vá langt síðan síðast en nóg búið að vera að gera síðustu vikurnar hjá okkur hér í DK:D Í fyrst lagi erum við flutt og fengum við húsið þann 13. og vorum búin að koma okkur þokkalega vel fyrir þegar Ólöf, Róbert, Elvar Ingi og Garðar Ingi mættu á svæðið:D Þau voru hjá okkur í 10 daga og var það alveg geggjað að hafa þau. Við fórum í dádýragarðinn, Djurssommerland, Legoland og margt fleira það var sko ekkert stoppað:D Vona ég að fjölskyldan hafi haft það gott hérna í Danaveldi og takk æðislega fyrir komuna ég sakna ykkar ekkert smá mikið:( Eins og ég sagði áðan þá var ýmislegt brallað á meðan þau voru hjá okkur og margt sem ekki er prenthæft:haha::haha: Það var vakað fram eftir öllu og allt sem því fylgir;) Þið sem þekkið okkur vitið hvað ég er að tala um en ef þið viljið fá nánari skýringar á þessu þá er bara að bjalla:haha:

Og svo tveimur dögum eftir að fjölskyldan yfirgaf okkur kom Addi frændi í heimsókn með Rósu sína og var voða gaman að fá þau til okkar. Hrafnhildur dóttir þeirra var að keppa með KR hérna í Árósum og fóru þau svo öll saman til Grikklands á sunnudeginum8) í brjálaða sól og brjálaðan hita skilst mér:D Addi, Rósa og Hrafnhildur takk fyrir komuna og fyrir okkur gaman að fá ykkur.

Á laugardaginn förum við svo á Sylt en eins og ég hef einhvern tíma sagt þá er það eyja sem tilheyrir Þýskalandi (svona sólarströnd segir fólk sem þekkir til) og þar hittum við allt fólkið mitt, sem sagt ma, pa, Kidda, Lindu, Báru, Fanney, Örnu Lind, Guðbjörgu, Sævar, Brynju og Fannar því hann elskulegi pabbi minn verður 60 ára á mán:D Okkur hlakkar svo til að hitta þau öll að við getum varla beðið, það verður rosalega gaman hjá okkur:D Við krossleggjum bara fingur í sambandi við veðrið annars er spáin góð og kannski að sumarið sé loksins að koma til okkar8)

Jæja hef svo sem ekki mikið meira að segja í bili svo ég bið að heilsa öllum á klakanum sem ég þekki eða sem þekkja mig (ansi margir:D og hafið það sem allra best.

BTW Elsku Linda og Arna Lind innilegar hamingjuóskir með afmælin ykkar ég knúsa ykkur þegar ég hitti ykkur:P

Verið nú jafn dugleg og síðustu skipti að kvitta alltaf gaman að heyra frá ykkur

Kveðja Magga og co


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 08:04:08 / mseefb

RIGNING RIGNING RIGNING

Já það rignir endalaust á okkur hérna og er orðið frekar pirrandi:klikk: En maður heyrir að sumarið sé aldeilis komið hjá ykkur þarna heima:D Það er nú gott að heyra það og vonandi heldur það áfram og að það fari nú að láta sjá sig hér hjá okkur líka8| En ég las það á Vísi að það er víst rigningamet hérna í Danmörku þessa dagana og það gat nú verið fyrst við búum hérna:!: Bjó á Akureyri líka einu sinni og þar var slegið met í snjókomu svo þetta er allt mjög eðlilegt:lol:

En hvað er að frétta annars af klakanum? Héðan er allt gott að frétta og Einar og Lovísa komin í sumarfrí en Jóna Kristín fer í frí eftir næstu viku og þá munum við flytja og það sem er enn skemmtilegra er að Ólöf, Róbert og strákarnir koma og verða hjá okkur í 10 daga:haha: Get ekki beðið eftir því að fá þau en vona sko að sólin verði farin að láta sjá sig þá (svona bara fyrir sólarsjúku vinkonu mína:haha:

Besta fréttin í þetta skipti er að Einar náði prófinu og stóð sig alveg með prýði:D Ekkert smá flott hjá honum og núna er hann byrjaður í praktík og verður í því út næstu viku.

Annars er svo sem ekkert sérstakt að frétta nema bara allir hafa það mjög gott, þrátt fyrir MIKLA bleytu.

Takk æðislega fyrir það hvað þið eruð dugleg að kvitta og vonandi haldið þið því áfram:D Biðjum að heilsa öllum og hafið það sem allra best í sólinni8)

Kveðja Magga og co


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 19:22:58 / mseefb

LANGT SÍÐAN SÍÐAST

Já já erum á lífi og veit kominn tími á blogg:D Allt fínt að frétta héðan en verð nú að segja það að veðrið er búið að vera hálf leiðinlegt (á okkar mælikvarða hér úti sko) síðustu daga, endalaus rigning af og til alla daga og bara glatað en þeir segja að þetta eigi að breytast í lok vikunnar8)

Mamma og pabbi eru búin að vera hjá okkur og var það alveg æðislegt að fá þau ég sakna þeirra svo að það er ekki eðlilegt:cry: Mamma kom nokkrum dögum á undan pabba og svo fóru þau saman heim núna á fimmtudaginn svo þetta var góður tími sem ég fékk að hafa þau hjá mér:D Á mánudaginn síðasta fórum við (öll nema Einar, hann er að læra undir próf) til Flensborgar og gistum þar eina nótt og var það rosalega fínt. Flottur lítill bær og væri ég sko alveg til í að fara þangað aftur. Svo fórum við með gömlu hjónin í Djurssommerland og voru þau dregin áfram í nokkur tæki - bara geggjað gaman:D Mamma og pabbi takk æðislega fyrir okkur og það var frábært að hafa ykkur vildi að þið kæmuð aftur næstu helgi:cry:

Einar er á fullu að læra fyrir lokasprettinn en hann skilaði verkefninu síðasta þriðjudag og þarf svo að verja það á morgun svo þið getið ímyndað ykkur spennuna á heimilinu þessa dagana:| Held að ég sé jafn stressuð og hann ef ekki stressaðari8|

Annars er bara allt gott að frétta af okkur og allir bara kátir:D Maður er á fullu að pakka ofan í kassa því eins og þið vitið þá fáum við húsið þann 13.júlí og ekki langt í það sko:!: Þetta er að verða það allra leiðinlegasta sem ég geri dí maður hvað þetta er leiðinlegt en þetta verður víst að gera og best að rumpa þessu bara af er það ekki:D

Og svo er auðvitað beðið spennt eftir næstu heimsókn en það verður 14.júlí en þá koma Ólöf, Róbert og strákarnir og ætla að vera hjá okkur í 10 daga:haha: Get ekki beðið eftir því að fá þau það verður bara geggjað:haha:

En jæja svo sem ekki meira að segja í þetta skiptið nema bara ÞÚSUND ÞAKKIR fyrir að vera svona duglega að skrifa inn á síðuna það er bara geggjað:haha: Endilega haldið þessu áfram.

Kveðja Magga og co


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 08:03:58 / mseefb

JÆJA JÆJA JÆJA

Jæja langt síðan síðast:lol: En vitiði er alveg að hætta að nenna þessu þar sem þið skrifið aldrei inn á þetta sorry en það er bara svo gaman að heyra í ykkur og hundleiðinlegt að opna síðuna dag eftir dag og heyra ekkert í ykkur þarna á fróni:!: En gömlu bekkjarsystur og vinkonur gaman að heyra í ykkur og endilega kíkja sem oftast við:D Jæja nú skal ég hætta þessu rausi-eða í bili allavega;)

Allt gott að frétta héðan og veðrið alveg geggjað8) 27 stig í gær, 22 stig í dag og svo mætti lengi halda áfram en sleppi því þar sem þið hafið það svo fínt þarna í rigningunni og rokinu:haha: Um hvítasunnuhelgina komu gestir til okkar og sko ekkert smá gaman að fá þau í heimsókn þyrfti að fá þau svona þriðju hvoru helgi það væri fínt því það var mikið hlegið og brallað og voða gott að hafa þau hérna hjá okkur. Þetta voru sem sagt Gylfi, Íris, Atli Már, Eva og Jón Þór. Kæra fjölskylda takk æðislega fyrir komuna og fyrir okkur frábært að hafa ykkur og alltaf velkomin aftur:D

Í gær fórum við í grill með íslendingunum sem búa hérna í hverfinu og var voða gaman. Það var farið í leiki, grillað, spjallað og hlegið og var þetta mjög fínt. Gaman að kynnast þessu fólki þar sem við erum nú að fara að flytja í götuna til þeirra (en við erum sem sagt núna í næstu götu við þau) en við erum búin að fá hús í Bögehaven þar sem svo margir íslendingar eru og erum við mjög ánægð að þurfa ekki að flytja í annan bæ. Það hefði bara eiginlega verið glatað. Við erum sem sagt að fara að flytja þann 15.júlí (í þriðja húsið síðan við fluttum hingað í júlí:!: og er þetta orðið frekar boring þessir flutningar hjá okkur eða hvað haldið þið:evil:

Nóg að gera hjá Einari í skólanum þessa dagana en hann er að vinna að prófverkefninu sínu og eigum við mæðgurnar eftir að sjá eitthvað lítið af honum næstu vikurnar:( En við erum að fá fleiri gesti því næsta þri kemur mamma í heimsókn og getum við ekki beðið eftir því að hitta hana og nokkrum dögum seinna eða á lau kemur pabbi og erum við rosa spenntar að sjá hann enda ekki séð hann síðan í mars:D og þau ætla að vera hjá okkur til 21. og verður þetta bara geggjað að hafa þau get ekki beðið:|

Lovísa er alltaf jafn ánægð í skólanum og nú er hún hætt í SFO og komin á stað þar sem eru dýr og börnin eru sem sagt að hugsa um þau á daginn eftir skóla:D Henni finnst þetta algjört æði og ljómar hún þegar við erum að tala um þetta:) Hún er búin að eignast kanínu þarna og heitir hann Snoopy og þarf hún sem sagt að hugsa um hann. Hún má taka hann með sér heim um helgar ef hún vill og er með sinn lykil að búrinu hans þetta er sko eitthvað fyrir hana skal ég segja ykkur:D Veit ekki alveg hvaðan hún hefur þetta blessunin, þennan áhuga fyrir dýrum en sennilega er það frá móður hennar þar sem hún er svo svakalegur dýravinur:haha: Næsta fös verður hún með pigeaften en þá koma bekkjarsystur hennar til okkar, borða, leika, horfa á video og svo ætla þær að sofa hér um nóttina:| Getiði ímyndað ykkur fjörið á bænum þá:!:

Af Jónu Kristínu er líka allt gott að frétta og alltaf jafn gaman í leikskólanum hjá henni:D Hún er svakalega stríðin krakkinn að það hálfa væri nóg veit ekki hvað hleypur í rassinn á henni stundum en yfirleitt ekki annað hægt en að brosa sko:P

Jæja nóg í bili og verið nú dugleg að kvitta er að meina það nenni þessu ekki ef þið látið ekki heyra í ykkur:klikk:

Kveðja Magga og co


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 08:14:37 / mseefb

HALLÓ HALLÓ HALLÓ

Jæja loksins skrifar maður eitthvað hér inn og heldur betur kominn tími til:lol: Héðan er bara allt fínt að frétta nema að í gær fengum við þær upplýsingar að við þurfum ENN EINU SINNI að flytja og vitum við ekkert hvert eða hvort við fáum eitthvað húsnæði þar sem það er ekki hlaupið að því að fá það hér í þessum bæ sem við erum í:$ En við verðum bara að vera dugleg að leita og spyrjast fyrir um eitthvað og er þetta orðið ansi þreytandi ef ég segi eins og er hvað ólukkan ætlar að elta okkur hérna í Danaveldi!!!!!!

Mamma og Guðbjörg mættu á svæðið um daginn og voru hjá okkur í viku og var alveg frábært að fá þær hingað til okkar:) Við fórum til Flensborg og eyddum einum degi þar í búðum (hvað annað:D, svo var farið í gamla bæinn að skoða, farið í fleiri búðir:D og svo var líka farið í tívolí og út að borða svo það var mikið brallað:P Takk æðislega fyrir okkur mamma og Guðbjörg og þið eruð alltaf velkomnar aftur rosa gott að hafa ykkur og vonandi komið þið sem fyrst:haha:

Lovísa Sif átti afmæli þann 30.apríl og bauð hún öllum stelpunum í bekknum í SS pylsur, íslensk pylsubrauð og Betty kökur:haha: Það var rosa stuð í afmælinu og óhætt að segja að þetta var ansi ólíkt afmælunum heima!!! Það var ekkert vesen, eins og oft er þegar margar stelpur koma saman (allavega íslenskar:D og alltaf var reynt að gera öllum til hæfis en það gerðu þær bara sjálfar með því að ræða saman um hvað hver og ein vildi gera. Þetta finnst mér frábært að sjá að krakkar á þessum aldri kunna að gera, þ.e. að ræða málin ekki bara rjúka í fýlu eða klaga!! Þetta var frábær dagur og Lovísa var rosalega ánægð með daginn. Svo um kvöldið var farið með afmælisbarnið út að borða og voru mamma og Guðbjörg auðvitað með í för:P

Einar er alltaf á fullu í skólanum og nóg að gera þar sem endaspretturinn nálgast og gengur honum bara vel í skólanum:P Og allt fínt að frétta af mér og nóg að gera í ritgerðinni minni sem ég er gjörsamlega búin að fá nóg af en verð víst að klára:$

Svo eigum við von á gestum um Hvítasunnuhelgina en Íris, Gylfi, Atli Már, Jón Þór og Eva ætla að koma til okkar og vera hjá okkur í 2 nætur og erum við orðin voða spennt að fá þau það verður voða gaman hjá okkur:haha:

Jæja nóg í bili bið að heilsa ykkur öllum og verið nú dugleg að kvitta;)

Kveðja Magga og co


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 06:49:38 / mseefb

Heldur betur.........

Kominn tími á færslu hér:lol: Allt fínt að frétta héðan úr sól og blíðu8) Gleðilegt sumar til ykkar allra og vonandi fer sumarið að láta sjá sig þarna á fróni:) Það var rosalega fínt hérna hjá okkur um páskana þar sem Lúllý og Binni mættu á svæðið og var ekki gert annað en að borða og aftur borða og kannski aðeins drukkið með því;) Ég og Lúllý fórum í smá búðarrölt og var það voða fínt að eyða einum degi bara við tvær (engin börn og engir kallar:D á meðan fóru Binni og Einar með stelpurnar í Toys´r Us (auðvitað hvað annað) þar sem stelpurnar fengu elskulega afa sinn til að blæða á sig smá dóti og fannst þeim það nú ekki leiðinlegt:D Annars höfðum við það rosalega gott um páskana og Lúllý og Binni takk fyrir að hafa komið og takk innilega fyrir okkur:D

Helgina eftir páska fór ég til Köbenog hitti elskulegu vinkonur mínar Ólöfu, Heiðu og Hafdísi og skemmtum við okkur konunglega þar í frábæru veðri8) Sátum á Nyhavn á lau í þvílíkum hita og það var alveg geggjað að horfa á fólkið það var sko troðið af fólki og fengum við ekki sæti nema á bryggjukantinum:D Ekki mikið farið í búðir aldrei þessu vant og fannst mér það nú alveg meiriháttar að þær kellurnar þurftu ekki að vera í búðum daginn út og daginn inn mér finnst það nú ekkert skemmtilegt ef ég segi eins og er allavega ekki marga daga í röð allt í lagi einn dag eða svo;) Takk æðislega fyrir geggjaða ferð vona að ég sjái ykkur fljótlega aftur.

Í gær fór Einar í ferð með skólanum til Köben og verður hann þar þangað til á föstudag. Mamma og Guðbjörg koma svo í dag og get ég ekki beðið eftir að hitta þær það verður rosalega gaman:haha: Við ætlum að bregða okkur til Flensborgar á morgun og kíkja auðvitað í búðir HVAÐ ANNAÐ:haha:

Jæja hætt í bili heyri í ykkur seinna og hafið það sem allra best elskurnar:D

Kveðja Magga og co


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 12:14:16 / mseefb

Heilsum frá Aarhus

HALLÓ HALLÓ allir hvað er málið með að skrifa inn á síðuna þið þarna úti!!!!! Jæja allt gott að frétta héðan og held að sumarið sé bara að koma. Búið að vera geggjað veður hérna alla vikuna og hitinn farið upp i 17 stig (þá meina ég í skugga:D Þetta er bara geggjað stelpurnar úti allan daginn og í leikskólanum hjá Jónu Kristínu er borðað úti og finnst henni það voðalega gaman. Alltaf brjálað að gera hjá Einari í skólanum og endalaus verkefnavinna svo hann getur ekki beðið eftir því að fara í smá frí yfir páskana:) Stelpurnar eru báðar komnar í páskafrí eftir daginn í dag og svo á þriðjudaginn mæta Lúllý og Binni til okkar og hlakkar okkur voða mikið til að hitta þau:D Núna um helgina á svo að fara í garðinn og taka aðeins til (ekki veitir af!!!! Svo er bara að taka fram garðsettið, bera á það og bíða eftir meiri hita:haha:

Það er sko aldeilis nóg að gera hjá minni næstu daga og vikur þar sem að, eins og ég sagði áðan, þá eru Lúllý og Binni að koma á þriðjudaginn og verða fram á sunnudag. Fimmtudaginn eftir það fer ég til Köben að hitta hana elskulegu Ólöfu mína og daginn eftir mæta mínar elskulegu Hafdís og Heiða og ætlum við að vera saman í Köben yfir helgina. Gvöööööööööðð hvað mig hlakkar til að hitta kellurnar og tala, hlægja, tala og hlægja í 4 daga:haha: Eftir ferðina til Köben þarf ég bara að bíða í 10 daga eftir mömmu og Guðbjörgu en þær ætla að koma á miðvikudegi fram á þriðjudag og get ég ekki beðið eftir því að fá þær það verður bara gaman:haha:

Hey hlustið nú en haldiði að mín hafi ekki farið að vinna í gær í SFO (frístundaskóla) þar sem voru börn á aldrinum 8-9 ára og var það bara alveg ágætt þrátt fyrir að mín sé nú hálf mállaus ennþá:lol: Þetta er svo skrýtið en ég er nú farin að skilja nánast allt og veit alltaf hvað ég á að segja en það er eins og það stoppi þarna einhversstaðar í hálsinum á mér:klikk: ALVEG GLATAÐ OG ÓÞOLANDI!!!!!!!!!!!! En svona er þetta bara:$ Mig langar svooooooo að fara að vinna þó það væri í skúringum og ætla ég (og hef verið) að reyna að finna eitthvað að gera sem fyrst.

Annars allt gott að frétta af öllum og allir voðalega kátir yfir veðrinu hérna núna vonandi helst þetta bara áfram:!::!: Lovísa er búin að vera dugleg að fá vinkonur sínar hingað heim eftir skóla og erum við foreldrarnir mjög ánægð með það en þetta er allt öðruvísi hér en heima því við þurfum alltaf að hringja kvöldið áður en Lovísa vill leika við einhvern, í barn og foreldra þess ef það á að gerast og ákveða tíma og allur sá pakki. Vá þeir eru svo skipulagðir að það hálfa væri nóg:haha: En við íslendingar mættum kannski aðeins taka þá til fyrirmyndar hvað þetta varðar en samt kannski ekki vera eins ýktir heldur fara milliveginn:lol: T.d. á Lovísa afmæli þann 30.apríl og ætlar að halda upp á það þann 28. og fór hún með boðskortin á mánudaginn svo þar sjáiði hversu skipulagðir þeir eru í einu og öllu:P

Jæja er hætt í bili og vona að þið farið nú að kvitta og skrifa eitthvað inn á síðuna er bara varla að nenna þessu ef enginn skrifar hér inn:evil:

Kveðja Magga og co


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 09:55:35 / mseefb

BLOGG..............

Jæja heldur betur kominn tími á blogg!!! Margt búið að vera að gerast síðan síðast. Eftir að fólkið mitt fór frá okkur kom Siggeir vinur Einars sem útskrifaðist með honum úr skólanum í Hveragerði og var hann hjá okkur frá miðvikudegi fram á sunnudag. Það var voða fínt að hafa hann í heimsókn og spjölluðum við mikið og svo fór Einar með hann á rúntinn á föstudeginum að skoða skólann hans og fleira. Honum leist rosalega vel á skólann hans sem og bæinn okkar:) Síðan mætti Brynja frænka á svæðið á sunnudagskvöldið og er búið að bralla ýmislegt síðan hún kom:haha: Það er að sjálfsögðu búið að kíkja aðeins í búðir og frænka búin að versla sér eitt og annað - en ekki hvað það væri nú ekki henni líkt að koma til útlanda og versla ekkert;) Við fórum til Flensborg á miðvikudaginn með stelpurnar og fannst Brynju voða gaman að koma þangað og pottþétt að maður fer þangað aftur:) Síðan er búið að fá sér rauðvín og en (eller ti:haha:) bjóra og fórum við aðeins niður í bæ á miðvikudaginn en voða lítið að gerast svo við stoppuðum ekki lengi við þar. Í kvöld ætlum við út að borða með Maju og kíkja svo kannski aðeins á skrall:P Bara búið að vera gaman hjá okkur frænkunum og svaka gaman að fá hana í heimsókn:D

Jæja svo fer Brynja heim á sunnudaginn:cry: og þá þurfum við bara að bíða í viku þar til Lúllý og Binni koma og verða hjá okkur frá þriðjudegi fram á sunnudag og eru allir orðnir spenntir að hitta þau og dagarnir taldir niður:D

Annars er allt gott að frétta héðan eins og vanalega. Vonandi fer sumarið að koma en það er að verða heitara en keflvíski vindurinn er aldeilis búinn að láta finna fyrir sér:klikk: Svo næstu laugardagsnótt breytist tíminn í 2 tíma á undan ykkur svo það bendir allt til þess að sumarið sé að mæta á svæðið:D

Jæja læt þetta duga í bili og bið að heilsa öllum á klakanum og hafið það gott öllsömul:D

Kveðja Magga og co


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 12:40:26 / mseefb

Hilsen úr góða veðrinu

Halló allir og hvað segiði nú gott:) Allt gott að frétta héðan nema hvað það er tómlegt í kotinu eftir að familian fór:( Það var rosalega gott að fá allt fólkið sitt og Mamma, pabbi, Kiddi, Linda, Fanney og Arna Lind takk fyrir allt saman og vonandi komið þið aftur í heimsókn. Við brölluðum margt á meðan þau voru hér en má þá helst minnast á búðirnar;) Æ þið vitið hvernig þetta er það vilja allir versla aðeins í útlandinu ekki satt!! Við keyrðum til Flensborg og það var gaman að koma þangað og er pottþétt að ég fer þangað aftur. Svo var að sjálfsögðu haldin veisla á laugardagskvöldið þar sem Kiddi bró átti afmæli á sunnudaginn og buðu Kiddi og Linda okkur upp á rosalega góðan grillmat sem pabbi grillaði:D Svo var setið og spjallað langt fram á kvöld og var voða gaman:lol: Á sunnudaginn hélt veislan áfram þar sem mamma klikkaði ekki og kom með kökubotna frá Íslandinu góða og var hámað í sig áður en kveðjustundin mikla rann upp:cry: Ég er ekki alveg að meika þessar kveðjustundir og það ætlar ekkert að lagast ég bara grenja og grenja eins og ég veit ekki hvað!! En það lagast á nokkrum dögum svo þetta fer nú allt að koma:lol: Sakna ykkar bara svo mikið að það hálfa væri nóg!!! Jæja þetta verður ekki meira í bili læt ykkur vita síðar hvernig gekk hjá Einari að flytja verkefni en stóri dagurinn er á morgun:| Svo er vinur Einars að koma á morgun og ætlar að vera í nokkra daga hjá okkur og svo kemur Brynja frænka á sunnudag og verður í viku svo það er nóg að gera. 3.apríl koma svo tengdó og verður voða gaman að hitta þau svo það er ekki hægt að kvarta yfir því að enginn komi í heimsókn;) Það liggur við að það komi fleiri í heimsókn hingað til manns en á Heiðarbrautina;)

Jæja bið að heilsa ykkur öllum og hafið það sem best. Elsku amma bið að heilsa þér og sakna þín rosalega.

P.S. Elsku Fanney frænka til hamingju með daginn og hafðu það sem allra best í dag og alltaf:)

BTW gleymdi að segja ykku að það eru 17 stig úti og geggjað veður, trampolínið komið upp og allir voða glaðir:)

Kveðja Magga


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 11:43:10 / mseefb

Hilsen fra Aarhus

Jú Íris heldur betur kominn tími á að blogga:lol: Vill byrja á því að þakka fyrir allar afmæliskveðjurnar hvort sem þær komu hér inn á eða í gegnum símann æðislega gaman að heyra í ykkur öllum:lol: Annars er allt fínt að frétta héðan. Einar er allur að koma til en það tekur að sjálfsögðu tíma að vinna upp þrek og orku!! Hann er að sjálfsögðu stressaður því það er nú ekkert grín að missa 2 vikur úr skólanum svo það verður nóg að gera næstu daga og vikur:| Síðasta helgi var mjög skemmtileg hjá okkur Lovísu en á föstudeginum fór ég í saumó sem við erum búnar að stofna 5-6 stelpur sem búa hér í Árósum og var hann haldinn hjá Eyrúnu frænku og var rosa gaman að hitta aðrar kellur frá Íslandi. Á laugardeginum var svo styrktarkvöld í skólanum hennar Lovísu þar sem foreldrar og börn mæta og skemmta sér. Þetta fannst mér alveg frábært (þrátt fyrir að Einar gæti ekki komið með) og finnst mér að við ættum að taka þetta upp heima!!!!! Það eru 2 íþróttasalir í skólanum og í þeim minni var búið að dekka upp borð fyrir krakkana, bar þar sem þau gátu keypt sér nammi og gos, hlaðborð með hinum ýmsu kræsingum og svo þegar búið var að borða var diskó með diskóljósum og alls kyns leikir bara gaman. Í stærri salnum var búið að dekka upp borð fyrir foreldra þar sem var hlaðborð, BARINN OPINN, hljómsveit skipuð af foreldrum og svaka stuð og gaman að hitta aðra foreldra og kynnast fólkinu. Svo máttu þau börn sem vildu sofa í skólanum gera það en foreldrarnir héldu áfram að skemmta sér langt fram á nótt. ÞETTA ER SNILLD finnst mér þar sem þetta gefur fólki tækifæri á því að kynnast hvort öðru á annan hátt en í miðri viku þegar verið er að skutla börnunum í skólann!!!

Nú bíð ég bara spennt eftir fólkinu mínu en mamma, pabbi, Kiddi, Linda, Fanney og Arna Lind eru að koma í heimsókn og ætla að vera fram á sunnudag og ég get ekki beðið eftir því að fá þau:D Kiddi bró verður FERTUGUR á sun svo við ætlum að halda upp á það um helgina:D Vá hvað ég á gamlan bróður finnst ég sjálf eitthvað eldast við þetta allt saman:haha:

Jæja annars allt gott að frétta og öllum líður vel vona að það sama sé um ykkur öll þarna heima:haha:

Kveðja Magga og co


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 15:44:50 / mseefb

BRRRRRRRRRRRRRRRRRR.........................

Vá litli snjórinn hef ekki séð svona mikinn snjó síðan ég bjó á Akureyri 1994:) Vona að það fari að rigna næstu daga er ekki að meika þennan snjó sko!!!!

Jæja nú kemur saga frá klakaferðinni og það sem hefur gerst hér í DK síðan við komum aftur:) Við sem sagt fórum til Íslands fim. 08.02 og lentum þar um kl.23J Mamma, pabbi, Lúllý, Binni og Arna Lind komu að taka á móti okkur og var rosalega gott að sjá þau öll. Síðan gistu Einar og Lovísa hjá Lúllý og Binna þá nótt og ég og Jóna Kristín hjá mömmu og pabba. Á föstudagsmorguninn var sko ekkert sofið út heldur farið í Heiðarskóla þar sem Lovísa hitti gömlu bekkjarfélagana og var það voða gaman og fékk hún svo að vera með krökkunum í kennslustund það sem eftir var af deginum og reyndar í tvo daga svo í vikunni á eftir og skemmti hún sér mjög vel. Síðan var haldið á Tjarnasel þar sem Jóna Kristín hitti alla krakkana sem voru með henni á deild og voru þau öll voðalega vandræðaleg fyrst en svo lagaðist það og hún var komin í leik með þeim áður en maður vissi af. Og alltaf jafn vel tekið á móti manni á Tjarnaseli bara frábær leikskóli-mæli hiklaust með honum!! Rétt eftir hádegi fóru stelpurnar svo með Lúllý ömmu og Binna afa í sund (vatnaveröldina) og skemmtu sér konunglega og eftir sundið var aðeins leikið við vinkonur og svo haldið í sumarbústaðinn þar sem þau voru yfir eina nótt. Á meðan við stelpurnar vorum að flakka á milli skóla og leikskóla fór Einar að heimsækja fólkið hjá Nesprýði og fannst honum voða gaman að hitta alla þar. Á föstudagskvöldinu fórum við Einar í mat til Möggu ömmu með mömmu og pabba og svo seinna um kvöldið komu þangað Guðbjörg, Sævar, Linda og Ólöf og eftir spjall og smá léttvín fórum við Ólöf á Paddys og skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir að stoppa stutt þar sem aðal kvöldið átti að vera á lauJ Á föstudagskvöldinu kom Bjarni til Einars og voru þeir að sötra öl og spjalla langt fram á nótt voða gaman hjá þeim enda mikið að tala um;) Á lau fór ég svo á flakk að hitta liðið og kíkja aðeins í búðirnar í Kef;) og svo um kvöldið hittumst við 11 kellur (frænkur og saumaklúbbur) á nýja Tælenska staðnum og var voða gott að borða þar, mikið hlegið og ég er ansi hrædd um að þau pör (hjón) sem ætluðu sér að eiga notalega stund hafi fljótt látið sig hverfa vegna hávaðaJ ég held ég sé bara komin með six pack þar sem ég hló svo mikið og var með harðsperrur í maganumJ Síðan var haldið á Paddys og Yello eftir að búið var að borða og skemmt sér fram á rauða nótt-GEGGJAÐ GAMANJJJ Takk æðislega fyrir frábært kvöld stelpur þið eruð alveg frábærarJJ   Næstu dagar á eftir fóru svo í heimsóknir og fórum við ansi oft til Kidda, Lindu og stelpnanna því þar á hann Bangsi heima (hundurinn) og hann er besti vinur Jónu Kristínar og hún tók það sko ekki í mál að gera annað en að heimsækja þau á HVERJUM DEGI!!!! Sem var bara fínt alltaf gaman að koma til Kidda bró og Lindu JJ Takk æðislega fyrir allt (lambakjötið og allt hitt) Linda, Kiddi og dætur J Svo var farið í mat til Guðbjargar og Sævars og var það rosalega gott alltaf gott að fá fisk (íslenskan sko) takk fyrir okkur Guðbjörg og SævarJ Svo vorum við að sjálfsögðu í mat hjá mömmu og pabba og Lúllý og Binna sem var frábært og takk fyrir okkur öll sömulJ  Svo leið manni eins og drottningu á meðan maður var á klakanum þar sem mamma og pabbi fluttu að heiman á lau. og fóru heim til ömmu svo við gætum öll verið saman í þeirra húsiJJ Haldiði að það sé nú dekrað við mann takk fyrir þetta mamma og pabbiJJ og svo voru allir að bjóða manni heim, í mat og allar græjur þetta var alveg frábær heimsókn á klakannJ  Svo var komið heim á fös fyrir viku og gekk ferðin mjög vel. Á lau fórum við svo á þorrablót íslendingafélagsins í Árósum og var bara voða gaman þar og enduðum við niðri í bæ með tveimur stelpum sem eru að læra hér svo að sun var bara í rólegheitum og hangið í sófanum mest allan daginn.   Á mán var Einar orðinn veikur og vorum við viss um það að hann væri að fá lungnabólgu sem er orðinn fastur liður á hverju ári síðustu 3 ár en hann fór til heimilislæknisins á þri sem sagði að þetta væri ekki lungnabólga heldur flensa og vildi ekkert gefa honum til að fyrirbyggja lungnab!!!!! Svo hann varð veikari og veikari með hverjum deginum og í gær ákvað ég að fara með hann aftur til heimilislæknisins og hvað haldiði???? Kominn með bullandi sýkingu og var lagður innL Þegar við komum til hans í gær var hann kominn á gjörgæsludeild, var í öndunarvél og ég veit ekki hvað mér fannst það svakalegt að sjá hann, hann var rosalega veikur. En í dag var hann settur á lungnadeild og er ekki enn í öndunarvél heldur með súrefnisvél sem er þrædd langt upp í nefið á honum. En ég vona að þetta fari allt að koma hjá honum og að þetta hafi ekki einhverjar alvarlegar afleiðingar í för með sér því hann er með svo mikinn astma sem byrjaði fyrir 3 árum þegar hann fékk lungnabólguna fyrst og hefur verið með astmapúst síðan þá.  Jæja nóg í bili vá þetta er ansi góð ritgerð hjá mérJJ Takk æðislega fyrir okkur allir á klakanum þetta var frábært að hitta ykkur öllJJJJ JJP.S. BTW Ég á afmæli í dag og kveðjur og kossar vel þakkaðir þar sem gleðin er ekki mikil á heimilinu í dagJ eða þið vitið hvað ég meinaJ  

Kveðja Magga og co

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 10:05:16 / mseefb

Kveðja

Jæja heldur betur kominn tími á færslu:lol: Allt gott að frétta héðan og allir svoooooo.... spenntir að koma á klakann:D Það er nú ýmislegt búið að gerast síðan síðast og má þar helst nefna hjónaferð okkar "hjónanna" til Köben að hitta liðið mitt og var það ekkert smá gaman:haha: Svaka gaman að hitta fólkið þrátt fyrir stuttan tíma með þeim. Við fórum í gær út í skóg sem heitir Lisbjerg skov þar sem haldin var festelavn (öskudagsskemmtun) með bekknum hennar Lovísu og það var voða gaman:D Kötturinn var sleginn úr tunnunni, borðaðar rosa góðar bollur, kveikt í báli og þar voru svo grillaðir sykurpúðar BARA GAMAN:haha: Það tók smá tíma að brjóta ísinn við foreldrana held að þau séu jafn smeyk við að koma og tala við okkur eins og við að tala við þau en það hafðist allt saman og gekk bara vel. Einn pabbinn var að tala um það hvað það væri ótrúlegt hvað Lovísa væri búin að búa hér í stuttan tíma en farin að tala dönskuna eins og innfædd (gaman að heyra þetta:D Gengur enn mjög vel í leikskólanum hennar Jónu Kristínar og nú er hún byrjuð í "tungumálakennslu" í leikskólanum og er það bara frábært. Einari gengur mjög vel en það er sko búið að vera nóg að gera hjá honum og verður það næstu mánuði-en svona er það bara að vera í skóla það er ekkert frí sko!!!!!

Jæja hef svo sem ekki mikið að segja núna nema bara allt gott og okkur hlakkar alveg rosalega til að koma á klakann á fim:haha:

Sjáumst í næstu viku og vona ég að við eigum eftir að hitta sem flesta!!

Kveðja Magga og co


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 20:56:44 / mseefb

Nyjar myndir

Halló allir vildi bara láta vita að það eru komnar inn nýjar myndir:haha: Þetta eru myndir héðan og þaðan og svo eru líka myndir af húsinu okkar:P En takið eftir að gardínuval og litaval á veggjum er ekki mitt svona bara að láta ykkur vita að svona smekkleg er ég ekki:D En við getum nú alveg lifað með þessu svo þetta var bara látið hanga fyrir gluggum og ekki er mikill áhugi á málarastarfinu hér á þessu heimili svo litirnir fá einnig að njóta sín:lol: Annars allt gott að frétta og styttist óðum í ferðina til Köben að hitta liðið mitt og get ég ekki beðið-dí hvað mig hlakkar til:P

P.s. myndirnar eru undir MYNDIR PICTURETRAIL (sem er undir myndadótinu)

Bið að heilsa í bili og hafið það gott:haha:

Kveðja Magga og co


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4